söngsíða söngstrumpsins

25.10.2007 20:06:08 / songstrumpur

Upprisa síðunnar.

Jæja gott fólk,þá er tími til kominn að lífga þessa síðu við og hefja hana til vegs og virðingar eins og stefnt var að þegar hún fór í loftið á Nýársdag s.l en leti og hirðuleysi hefur nánast drepið þessa síðu en nú verða fréttir af Plútó og Hraðakstur bannaður verða settar hér inn auk þess sem viðtölum verður dembt inn eftir því sem tími gefst til.

Líklega verða fleiri starfsmenn hér sem munu blogga hérna en eftir sem áður mun ég verða yfirmaður síðunnar enda stofnandi hennar og eigandi.

Hér munu Hraðakstur bannaður og Plútó eiga sinn heimavöllog er þetta blogg og fréttasíða þeirra auk þess sem áhugaverðir tónleikar innlendra sem erlendra,þetta verður semsagt líka upplýsingarsíða um allt sem tengist tónlist og t.d veit ég að Antonio Boccelli spilar í reykjavík 31 október og Carola hin sænska sem 3svar hefur keppt fyrir svía í Eurovision mun syngja jólalög á tónleikum í Grafavogskirkju 20 desember,einnig er þungarokkssveitin Skid Row á leið hingað til landsí nóvember í boði íslensku hljómsveitarinnar Sign en þeir hita upp fyrir Skid Row á evróputúr þeirra,tónleikar þeirra verða á NASA.

En meira síðar-KV: Söngstrumpurinn.


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 16:30:06 / songstrumpur

Komið þið sæl og blessuð.

Þá er kominn ný söngsíða,efni hennar er eins og gefur að skilja tónlist,böll hljómsveita,böll hljómsveitanna í Fjölmennt auk þess sem hér eru textasíður ýmiskonar,einnig verður skrifað um ef einhver bönd koma til landsins og fleira mætti nefna til,Þessari síðu er semsagt ætlað að vera vinum og kunningjum sá viskubrunnur í tónlist sem vera ber,ég vona að þessi síða verði ykkur til ánægju ogyndisauka en um leið sú uppýsingasíða sem þið þurfið.Með söngkveðju: Söngstrumpurinn.

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill
Tónlistarmenn.
Klukkan